
Eftir langt hlé í vinnslu á heimasíðunni, ætlum við nú að reyna að taka okkur á og halda okkur við það. Enn er verið að vinna í því að setja inn það feiknarmagn af hrossum sem við eigum, enn það kemur á endanum :) Hekla Katharina fór norður á Hóla í byrjun janúar að klára háskólanám sitt þar. Hún stundar nú nám við reiðkennarabrautina, og mun v...

Hver í ósköpunum getur staðist þessi augu ? :)Hvolparnir vaxa og dafna mjög vel. Þeirra dagur fer í það að drekka og sofa! Reyndar er að byrja að færast eitthvað líf í þá og rétt bráðum verða þeir örugglega á fullu að leggja land undir fót. Læt hérna fylgja með nýja mynd af þeim. Enn og aftur vil ég reyna að koma þessum dúllum út. Ef þið hafið áhug...

Eitthvað hefur leti einkennt mæðgurnar að Árbæjarhjáleigu því við höfum ekki skrifað frétt í háa herrans tíð. Sumpart getur ástæðan líka verið sú að veðrið hefur aldeilis verið að leika við okkur, þegar þannig er þá þýðir lítið að sitja inni í tölvunni. Það eitt er víst :) Mikið hefur verið á döfinni. Til dæmis var kynbótasýning í gangi vikun...

Þessi mynd var tekin úr svalarhurðunum á Árbæjarhjáleigu í vikunni, maður veltir fyrir sér hvort gosið sé ekki örugglega hætt.Nú er sumarið virkilega byrjað, heyskapur á fullu, kindum smalað á fjall, tamningar, járningar og síðast en ekki síst sundreið. Já, fyrsti sundreiðtúrinn var farinn í vikunni. Við hefðum nú viljað fara mikið fyrr en erum nú ...

Ýmislegt hefur verið um að vera á Árbæjarhjáleigu og er ekkert nema gott um það að segja. Um helgina var mikið um að vera því loksins loksins loksins gátum við systurnar keppt í fyrsta skipti þetta sumar. Að sjálfsögðu var það svakalega gaman þó að manni þætti maður verða orðin pínu ryðgaður en það lagaðist svona þegar leið á mótið. Rakel gekk ekki...
